Menu Content/Inhalt
Heim
Nýir netþjónar Gíraffa
Skrifað af Andrés Gunnarsson   
fimmtudagur, 30 apríl 2009
Margt hefur drifið á daga Gíraffa síðan um áramótin og höfum við tekið vel á móti fjölmörgum viðskiptavinum á undanförnum mánuðum. Nú er undirbúningur við nýja innlenda netþjóna Gíraffa í fullum gangi. Þegar þeir verða teknir í notkun munu venjulegir vefhýsingapakkar verða fluttir til Íslands nema viðskiptavinir óski sérstaklega eftir öðru. Við munum að sjálfsögðu ennþá bjóða upp á erlenda hýsingu fyrir þá sem það vilja. Stefnt er að því að nýju vélarnar verði teknar í gagnið um mitt sumar.

 

Lesa alla frétt / Gefa álit

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 30 apríl 2009 )
 
Gíraffi óskar viðskiptavinum gleðilegs árs
Skrifað af Andrés Gunnarsson   
þriðjudagur, 06 janúar 2009
Nú þegar árið 2008 er á enda langar Gíraffa að þakka viðskiptin á árinu sem leið.
Á nýju ári stendur ýmislegt til hjá Gíraffa sem mun auka þjónustu við viðskiptavini. Af því er helst að nefna nýjan vélasal Gíraffa sem verður tekinn í notkun á næstu mánuðum og nýja vefsíðu sem ætti að komast í notkun á árinu.

Gíraffi horfir því fram á veginn á erfiðum tímum og óskar viðskiptavinum farsældar á nýja árinu.

 

Lesa alla frétt / Gefa álit

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 30 apríl 2009 )
 
Niðritími þann 13 Apríl
Skrifað af Garðar Arnarsson   
fimmtudagur, 10 apríl 2008

Sunnudaginn 13. apríl geta viðskiptavinir Gíraffa búist við því að hýsingar verði óaðgengilegar í u.þ.b. 15 mínútur. Orsök niðritímans er uppfærsla netbúnaðar í netþjónabúi þar sem hluti netþjóna Gíraffa er geymdur. Aðgerðirnar munu vara í u.þ.b. korter einhvertíman á bilinu frá 08:00 - 10:00.

 Lesa alla frétt / Gefa álit

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 10 apríl 2008 )